Taktu þátt!

Leik lokið!

Taktu þátt!

    Taktu þátt!

    Kauptu Extra tyggjó að eigin vali og taktu mynd af kvittuninni

    Fylltu út upplýsingar um þig hér á heimasíðunni og sendu okkur mynd af kvittuninni

    10 aðalvinningar eru Bose heyrnatól að verðmæti 59.900 kr.

    Leikurinn stendur frá 28.08.23 til 30.09.23. Framkvæmd leiksins er í höndum starfsfólks Innnes ehf.

    Extra tyggjó vörur

    Hér getur þú skoðað allar vörur Extra.

    REGLUR & SKILMÁLAR

    Leikurinn stendur frá 28.08.23 til 30.09.23.

    Framkvæmd leiksins er í höndum starfsfólks Innnes ehf.

    Þátttakendur í leiknum þurfa að vera 16 ára að lágmarki þegar þeir taka þátt. Til að taka þátt í leiknum þarf þátttakandi að kaupa einhverja tegund af Extra tyggjói í verslun á Íslandi á tímabilinu sem leikurinn stendur. Þátttakendur þurfa að geyma kvittun fyrir kaupunum og taka mynd af henni til að geta tekið þátt í leiknum. Á myndinni skal sjást greinilega hvar varan var keypt (verslun) og hvenær (dagsetning). Þátttakendur þurfa að fylla inn upplýsingar í form á heimasíðu leiksins og senda myndina í gegnum formið á síðunni. Í formið þarf að fylla inn upplýsingar um fullt nafn og netfang þátttakenda. Þátttakendur geta einnig tekið þátt með því að senda mynd af kassakvittun og upplýsingar um nafn á netfang leiksins extrabros@innnes.is.

    Þátttakendum ber að gæta þess að upplýsingar sem þeir fylla inn á séu réttar. Innnes tekur ekki ábyrgð ef upplýsingar eru ranglega fylltar inn. Þegar upplýsingar og myndir af kassakvittunum hafa verið sendar inn á heimasíðu leiksins fær þátttakandi tölvupóst sem staðfestir móttöku myndarinnar. Þátttakendum er skylt að kynna sér reglur og skilmála leiksins áður en þeir taka þátt. Haka þarf í sérstakt box á heimasíðunni því til staðfestingar áður en upplýsingar og mynd af kassakvittun eru sendar.

    10 aðalvinningar eru Bose heyrnatól*.

    Vinningshafar verða dregnir út í lok leiksins þriðjudaginn 03.10.23. Vinningshöfum verður tilkynnt um vinninga í tölvupósti miðvikudaginn 04.10.23. Nöfn vinninghafa birtast einnig á heimasíðu leiksins og Facebook síðu Innnes.

    Vinningshafar skulu vitja vinninga innan þriggja vikna frá því að tilkynning berst vinninghafa um vinning í tölvupósti eða í síðasta lagi miðvikudaginn 24.10.23. Vinninga sem ekki er vitjað innan þess tímaramma verður ráðstafað til góðgerðarmála. Vinninga er hægt að nálgast hjá vöruafgreiðslu Innnes, Korngörðum 3, 104 Reykjavík, milli klukkan 8-16 virka daga. Einnig er hægt að hafa samband í tölvupósti á extrabros@innnes.is. Vinningar verða ekki sendir heim til vinningahafa. Framvísa þarf skilríkum við móttöku vinninga. Hverjum þátttakanda er heimilt að taka þátt eins oft og hann/hún vill en ekki er heimilt að senda inn mynd af sömu kassakvittun oftar en einu sinni. Vinningum fæst hvorki skilað eða skipt.

    Nöfn og netföng þátttakenda verða hvorki seld til þriðja aðila né notuð í markaðslegum tilgangi. Starfsfólk Innnes annast framkvæmd leiksins og er óheimilt að taka þátt í leiknum.

    *Vinningar og verðlaun eru skattskyldar tekjur og bera tekjuskatt og útsvar eftir almennum reglum. Nánari upplýsingar hjá RSK.is.