Við hjá Innnes viljum þakka ykkur innilega fyrir komuna á sýninguna okkar, Matur & Vín 2024.

Við erum óendanlega þakklát fyrir mætinguna og áhugann á því sem við og birgjarnir okkar buðu upp á úr heimi matar og víns. Það var virkilega gaman að sjá svona marga birgja koma saman og deila ástríðu sinni á matargerð og vínmenningu með viðskiptavinum okkar, velunnurum og áhugafólki. Það gleður okkur að um þúsund gestir lögðu leið sína til okkar, langt umfram okkar björtustu vonir!

Ykkar stuðningur er ómetanlegur og við hlökkum til að halda áfram að vinna með ykkur í framtíðinni.

Með bestu kveðju,

Starfsfólk Innnes