Project Description
Toblerone ís
Innihald:
- 5 eggjarauður
- 5 msk. sykur
- 150 g Toblerone, brætt
- 5 dl rjómi, þeyttur
- 100 g Toblerone, fínsaxað
Aðferð:
- Þeytið eggjarauður og sykur saman í hrærivél í 3-4 mínútur eða þar til blandan er orðin létt og ljós.
- Bræðið 150 g af Tobleronesúkkulaði yfir vatnsbaði, kælið það lítillega og hellið því síðan út í eggjablönduna í mjórri bunu. Blandið vel saman.
- Hrærið rjómann að lokum varlega saman við með sleif. Hellið blöndunni í fallegt mót og skreytið með söxuðu Toblerone.
- Frystið í a.m.k. 4 klst.